top of page
nathan-anderson-cJaidUS_Kqs-unsplash.jpg

Eftirlit og eftirfylgd með börnum í fóstri

Fagleg aðstoð við eftirlitsheimsóknir fyrir barnaverndarþjónustur

Sigur ráðgjöf tekur að sér framkvæmd, skráningu og eftirfylgd eftirlitsheimsókna vegna barna í fóstri fyrir barnaverndarþjónustur.


Við getum sinnt einstökum eftirlitsheimsóknum, reglubundnu eftirliti eða stærri tímabundnum verkefnum og aðlögum framkvæmdina að þörfum hverrar barnaverndarþjónustu.


Þjónustan er unnin samkvæmt verkbeiðni og í nánu samstarfi við viðkomandi barnaverndarþjónustu, innan þess umboðs og verklags sem hún ákveður.

Hvenær getur þjónustan hentað?

Þjónusta Sigur ráðgjafar getur meðal annars hentað þegar:

  • tímabundinn skortur er á starfsfólki,

  • vinna þarf upp uppsafnaðar eftirlitsheimsóknir,

  • þörf er á utanaðkomandi fagmanni til að sinna afmörkuðum hluta verkefnis,

  • barn í fóstri dvelur langt frá því sveitarfélagi sem ber ábyrgð á eftirfylgd þess,

  • tengsl eða nálægð milli aðila geta gert framkvæmd eftirlits viðkvæma,

  • aðstæður í fámennum samfélögum skapa hættu á hagsmunaárekstrum,

  • óskað er eftir auknu sjálfstæði eða hlutlægni við framkvæmd eftirlits.

 

Með sveigjanlegri verktakaþjónustu getur barnaverndarþjónusta brugðist við tímabundnu álagi eða skorti á mannafla án þess að draga úr reglufestu og gæðum eftirlits.

Hvað felst í þjónustunni?

Verkefni eru útfærð í samráði við verkkaupa og geta meðal annars falið í sér:

  • undirbúning og yfirferð fyrirliggjandi gagna,

  • framkvæmd eftirlitsheimsóknar á fósturheimili,

  • samtal við barn með hliðsjón af aldri þess og þroska,

  • samtal við fósturforeldra um líðan barnsins og framkvæmd fósturs,

  • viðtöl við aðra lykilaðila þegar það á við og heimildir standa til,

  • athugun og mat á aðbúnaði, líðan og þörfum barnsins,

  • mat á styrkleikum, áhættu og stuðningsþörf,

  • skráningu heimsóknar samkvæmt samræmdu verklagi,

  • faglegt mat og samantekt helstu niðurstaðna,

  • skriflega skýrslu til ábyrgðaraðila málsins,

  • tillögur að atriðum sem þarfnast frekari eftirfylgdar þegar það á við.

 

Sérstök áhersla er lögð á að sjónarmið barnsins komi skýrt fram og að skráning endurspegli hvað var kannað, við hverja var rætt og á hvaða upplýsingum faglegt mat byggist.

Skýr skil að lokinni heimsókn

Að lokinni eftirlitsheimsókn fær verkkaupi skriflega skýrslu þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmd heimsóknarinnar, þær upplýsingar sem aflað var, helstu athuganir, sjónarmið barnsins og faglegt mat á þeim þáttum sem verkbeiðnin tekur til.

Vönduð og rekjanleg skráning auðveldar barnaverndarþjónustu áframhaldandi vinnslu málsins og tryggir að þær upplýsingar sem aflað hefur verið liggi skýrt fyrir.

Að lokinni heimsókn fær barnaverndarþjónustan skriflega skýrslu með upplýsingum um framkvæmd heimsóknarinnar, helstu athuganir, sjónarmið barnsins og faglegt mat á þeim þáttum sem verkbeiðnin tekur til.

Þverfagleg sérþekking og reynsla

Sigur ráðgjöf sameinar sérþekkingu klínísks atferlisfræðings og klínísks félagsráðgjafa með áratuga reynslu af vinnu með börnum, ungmennum og fjölskyldum.

Sérþekking okkar byggir meðal annars á:

  • störfum innan skóla, félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðisþjónustu,

  • umfangsmikilli reynslu af viðtölum við börn og mati á aðstæðum þeirra og þörfum,

  • reynslu og þekkingu á stjórnsýslu barnaverndar,

  • þekkingu á fósturmálum,

  • undirbúningsnámskeiði BOFS fyrir verðandi fósturforeldra og reynslu af fósturforeldrahlutverki.

 

Þessi fjölbreytta reynsla veitir innsýn í lagalegt, faglegt og hagnýtt umhverfi barnaverndar og fósturmála. Áralöng reynsla af viðtölum við börn nýtist jafnframt við að skapa aðstæður sem stuðla að öryggi og trausti og gefa barninu raunverulegt tækifæri til að tjá sig.

Hafðu samband

Hægt er að óska eftir þjónustu vegna einstakra fósturmála, reglubundins eftirlits eða stærri tímabundinna verkefna.

Umfang verkefnis, verkaskipting, framkvæmd, skráning og skil gagna eru ákveðin í samráði við verkkaupa.

Hafðu samband til að ræða hvernig Sigur ráðgjöf getur stutt barnaverndarþjónustuna þína við framkvæmd eftirlits og eftirfylgdar með börnum í fóstri.

Nánari upplýsingar um framkvæmd eftirlits

bottom of page