top of page

Temdu þér tímastjórnun

Einar Aron Fjalarsson Fossberg

13. maí 2023

Til þess að hafa sem mest áhrif þurfum við að nýta tímann okkar eins vel og hægt er. Mánaðarlaun geta nýst vel, hægt að leggja til hliðar og ávaxta en tíminn sem líður kemur aldrei aftur.


Rifjaðu upp upp hvar þú varst og hvað þú gerðir milli klukkan 19-21 síðasta þriðjudag. Ef þú manst það ekki er hætt við að við séum ekki að nýta tímann eins vel og við getum og við fáum þann tíma aldrei aftur. Hann er farinn að eilífu.


Tími fer ekki í manngreinarálit, hann er sá sami fyrir alla. Leiðtoga og fylgjendur, skipulagða og óskipulagða, lata og duglega. Við höfum öll 24 stundir í sólarhring.


Til þess að taka skref í átt að betri tímastjórnun þurfum við að átta okkur á tímaþjófum í kringum okkur. Hér lista ég upp nokkur atriði sem hafa áhrif á hvernig við nýtum tímann okkar. Listinn er ekki tæmandi.


TRUFLANIR. Sumir sjá sýnileika sem það sama og að vera laus, fólk gengur á lagið og truflar í tíma og í ótíma, alltaf án fyrirvara. Það gengur bara til þín og byrjar að tala. Berðu virðingu fyrir tíma þínum og settu fólki mörk.


SNJALLSÍMINN. Á sama hátt og einhver droppar við og truflar, geta símtöl, sms, tölvupóstar og önnur skilaboð haft áhrif á það sem við komum í verk. Settu þér mörk og gerðu eitt af tvennu; Settu símann á hljótt og geymdu hann þar sem þú sérð hann ekki eða slökktu á tilkynningum og hljóði og láttu hann snúa niður.


SAMFÉLAGSMIIÐLAR. Við eigum það til að detta inn á TikTok eða Instagram, boomers á Facebook og eigum það öll sameiginlegt að skrolla - Endalaust. Til þess voru þessir miðlar hannaðir og þeim tókst vel til. Leggðu símann frá þér! Hvernig viltu hafa áhrif á aðra ef þú hefur ekki stjórn á þér?


LÉLEGT SKIPULAG. Ef við höfum ekki skipulag er hætt við að við komum verkum seint og illa í verk. Mér fannst frábært að kveikja á Netflix á meðan ég skrifa greinar eða svara tölvupóstum. Fínt að hafa smá afþreyingu þarna bakvið. Áður en ég vissi af var ég farinn að horfa á Netflix. Það versta er, ég geri þetta stundum enn. Skipuleggjum pásur. Skipuleggjum verkefni og veljum okkur eitt verkefni til að klára í senn. Multitask virkar ekki, það hægir á þér og dregur úr þér orkuna.


LÉLEG VERKASKIPTING. Stundum treystum við ekki fólki fyrir því sem við gerum og við viljum gera allt sjálf. Lærðu að deila verkefnum. Ef þú treystir ekki fólki sem þú leiðir og byggir upp, ertu eflaust að gera rangan hlut í lífinu. Hjálpaðu fólki í fyrstu, kenndu þeim verkefnið hægt og rólega og á endanum þarftu aldrei að hugsa um verkefnið aftur.


FORGANGSVERKEFNI ÓSKÝR. Eisenhower vitnaði einu sinni í Dr. Roscoe Miller, forseta Northwestern háskólans og sagði:

„Ég hef tvö vandamál. Það sem liggur á að gera og það sem er mikilvægt. Það sem liggur á er ekki mikilvægt og það sem er mikilvægt liggur ekki á.“ Temdu þér að forgangsraða og fylgja því.

bottom of page