top of page

Eftirlit með börnum í fóstri

Fagleg aðstoð við eftirlitsheimsóknir fyrir barnaverndarþjónustur

Sigur ráðgjöf tekur að sér framkvæmd, skráningu og eftirfylgd eftirlitsheimsókna vegna barna í fóstri fyrir barnaverndarþjónustur.


Við getum sinnt einstökum eftirlitsheimsóknum, reglubundnu eftirliti eða stærri tímabundnum verkefnum og aðlögum framkvæmdina að þörfum hverrar barnaverndarþjónustu.


Þjónustan er unnin samkvæmt verkbeiðni og í nánu samstarfi við viðkomandi barnaverndarþjónustu, innan þess umboðs og verklags sem hún ákveður.

Hvenær getur þjónustan hentað?

Þjónusta Sigur ráðgjafar getur meðal annars hentað þegar:

  • tímabundinn skortur er á starfsfólki,

  • vinna þarf upp uppsafnaðar eftirlitsheimsóknir,

  • þörf er á utanaðkomandi fagmanni til að sinna afmörkuðum hluta verkefnis,

  • barn í fóstri dvelur langt frá því sveitarfélagi sem ber ábyrgð á eftirfylgd þess,

  • tengsl eða nálægð milli aðila geta gert framkvæmd eftirlits viðkvæma,

  • aðstæður í fámennum samfélögum skapa hættu á hagsmunaárekstrum,

  • óskað er eftir auknu sjálfstæði eða hlutlægni við framkvæmd eftirlits.

 

Með sveigjanlegri verktakaþjónustu getur barnaverndarþjónusta brugðist við tímabundnu álagi eða skorti á mannafla án þess að draga úr reglufestu og gæðum eftirlits.

Hvað felst í þjónustunni?

Verkefni eru útfærð í samráði við verkkaupa og geta meðal annars falið í sér:

  • undirbúning og yfirferð fyrirliggjandi gagna,

  • framkvæmd eftirlitsheimsóknar á fósturheimili,

  • samtal við barn með hliðsjón af aldri þess og þroska,

  • samtal við fósturforeldra um líðan barnsins og framkvæmd fósturs,

  • viðtöl við aðra lykilaðila þegar það á við og heimildir standa til,

  • athugun og mat á aðbúnaði, líðan og þörfum barnsins,

  • mat á styrkleikum, áhættu og stuðningsþörf,

  • skráningu heimsóknar samkvæmt samræmdu verklagi,

  • faglegt mat og samantekt helstu niðurstaðna,

  • skriflega skýrslu til ábyrgðaraðila málsins,

  • tillögur að atriðum sem þarfnast frekari eftirfylgdar þegar það á við.

 

Sérstök áhersla er lögð á að sjónarmið barnsins komi skýrt fram og að skráning endurspegli hvað var kannað, við hverja var rætt og á hvaða upplýsingum faglegt mat byggist.


Skýr skil að lokinni heimsókn

Að lokinni eftirlitsheimsókn fær verkkaupi skriflega skýrslu þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmd heimsóknarinnar, þær upplýsingar sem aflað var, helstu athuganir, sjónarmið barnsins og faglegt mat á þeim þáttum sem verkbeiðnin tekur til.

​

Vönduð og rekjanleg skráning auðveldar barnaverndarþjónustu áframhaldandi vinnslu málsins og tryggir að þær upplýsingar sem aflað hefur verið liggi skýrt fyrir.

​

Að lokinni heimsókn fær barnaverndarþjónustan skriflega skýrslu með upplýsingum um framkvæmd heimsóknarinnar, helstu athuganir, sjónarmið barnsins og faglegt mat á þeim þáttum sem verkbeiðnin tekur til.


Þverfagleg sérþekking og reynsla

Sigur ráðgjöf sameinar sérþekkingu klínísks atferlisfræðings og klínísks félagsráðgjafa með áratuga reynslu af vinnu með börnum, ungmennum og fjölskyldum.

Sérþekking okkar byggir meðal annars á:

  • störfum innan skóla, félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðisþjónustu,

  • umfangsmikilli reynslu af viðtölum við börn og mati á aðstæðum þeirra og þörfum,

  • reynslu og þekkingu á stjórnsýslu barnaverndar,

  • þekkingu á fósturmálum,

  • undirbúningsnámskeiði BOFS fyrir verðandi fósturforeldra og reynslu af fósturforeldrahlutverki.

 

Þessi fjölbreytta reynsla veitir innsýn í lagalegt, faglegt og hagnýtt umhverfi barnaverndar og fósturmála. Áralöng reynsla af viðtölum við börn nýtist jafnframt við að skapa aðstæður sem stuðla að öryggi og trausti og gefa barninu raunverulegt tækifæri til að tjá sig.

​

Hafðu samband

Hægt er að óska eftir þjónustu vegna einstakra fósturmála, reglubundins eftirlits eða stærri tímabundinna verkefna.

​

Umfang verkefnis, verkaskipting, framkvæmd, skráning og skil gagna eru ákveðin í samráði við verkkaupa.

Lögbundið hlutverk barnaverndarþjónustu

Barnaverndarþjónusta sem ráðstafar barni í fóstur ber lögbundna ábyrgð á að fylgjast með aðbúnaði barnsins, líðan þess og því að fósturráðstöfunin nái tilgangi sínum.


Samkvæmt barnaverndarlögum skal heimsækja fósturheimili eins oft og ástæða þykir til, þó að lágmarki tvisvar á fyrsta ári ráðstöfunar og árlega eftir það. Jafnframt skal tryggja reglulegt samband við barnið þannig að það fái raunverulegt tækifæri til að tjá sig um aðstæður sínar, líðan og upplifun.


Lögbundið eftirlit felur því ekki aðeins í sér reglulegar heimsóknir heldur einnig markvissa skráningu, mat á aðstæðum barnsins og eftirfylgd sem styður áframhaldandi ákvarðanatöku barnaverndarþjónustu.


Sigur ráðgjöf tekur að sér framkvæmd eftirlitsheimsókna samkvæmt verkbeiðni barnaverndarþjónustu. Þjónustan felur ekki í sér framsal á lögbundinni ábyrgð barnaverndarþjónustunnar heldur er framkvæmd innan þess umboðs sem hún veitir.

Sigur ráðgjöf vinnur eftir fyrirfram skilgreindu verklagi sem miðar að samræmdri framkvæmd, skráningu og faglegu mati.


Verklagið byggir á ákvæðum barnaverndarlaga, reglugerðar um fóstur og faglegum viðmiðum um framkvæmd eftirlits.


Við notum samræmt verklag og gátlista sem stuðlar að því að mikilvæg atriði séu könnuð og metin með sambærilegum hætti í hverri eftirlitsheimsókn.


Áhersla er lögð á að afla upplýsinga með skipulegum hætti, greina bæði styrkleika og mögulega áhættuþætti og skrá með skýrum hætti þær upplýsingar sem faglegt mat byggist á.

Mikilvægur þáttur eftirlits er að barnið sjálft fái raunverulegt tækifæri til að tjá sig um aðstæður sínar, líðan og upplifun af fóstrinu.


Samtal við barn er útfært með hliðsjón af aldri þess, þroska og aðstæðum. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður sem stuðla að öryggi og trausti og að sjónarmið barnsins komi skýrt fram í skráningu.


Við leggjum jafnframt áherslu á að eftirlitsheimsókn fari fram í andrúmslofti virðingar þar sem bæði barnið og fósturforeldrar fá tækifæri til að lýsa upplifun sinni og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Markmið eftirlits er ekki aðeins að uppfylla formlega skyldu um heimsókn heldur að afla upplýsinga sem nýtast við áframhaldandi vinnslu máls og mat á stöðu barnsins.


Skýr skráning gerir barnaverndarþjónustu kleift að sjá hvaða upplýsingar liggja fyrir, á hvaða athugunum faglegt mat byggist og hvort atriði hafi komið fram sem kalla á frekari eftirfylgd eða viðbrögð.


bottom of page