
Hegðunarvandi barna
LESA YFIR
Sigur ráðgjöf veitir ráðgjöf vegna krefjandi hegðunar barna og ungmenna. Þjónustan getur nýst þegar hegðun barns hefur veruleg áhrif á líðan þess, samskipti, fjölskyldulíf, skólagöngu eða þátttöku í daglegu lífi.
Markmiðið er að skilja hvað liggur að baki hegðuninni, hvaða aðstæður kalla hana fram og hvaða þættir í umhverfi barnsins geta ýtt undir eða viðhaldið vandanum. Áhersla er lögð á að horfa á heildarmyndina og vinna með þá fullor ðnu sem koma að lífi barnsins.
Mat á aðstæðum barnsins
Vinnsla máls hefst yfirleitt á samtölum við foreldra, umönnunaraðila og fagfólk sem þekkir barnið vel. Eftir eðli máls getur einnig verið fylgst með barninu í sínu daglega umhverfi, svo sem á heimili, í skóla eða í frístundastarfi.
Þegar það á við eru notaðir spurningalistar eða önnur skipulögð gögn til að fá skýrari mynd af hegðun barnsins og þeim aðstæðum sem tengjast vandanum.
Við matið er meðal annars horft til:
hvenær og við hvaða aðstæður hegðunin kemur fram,
hvaða viðbrögð fylgja hegðuninni,
hvort ákveðnar kröfur, samskipti eða aðstæður auki vandann,
svefns, mataræðis, skjátíma og annarra þátta sem geta haft áhrif á líðan og hegðun,
styrkleika barnsins og þess sem gengur vel,
samskipta barnsins við foreldra, systkini, starfsfólk og jafnaldra,
greininga eða taugaþroskaþátta, svo sem ADHD eða einhverfu, þegar slíkt á við.
Markmiðið er að fá eins skýra mynd og mögulegt er af því hvað hefur áhrif á hegðun barnsins áður en ákveðið er hvernig best sé að bregðast við.
Aðgerðir sem nýtast í daglegu lífi
Þegar nægar upplýsingar liggja fyrir eru lagðar fram tillögur að breytingum og aðferðum sem hægt er að nota í daglegu umhverfi barnsins.
Unnið getur verið með:
skýrari rútínu og fyrirsjáanleika,
breytingar á kröfum eða áreiti,
jákvæða styrkingu,
skýr og samræmd viðbrögð fullorðinna,
umbunarkerfi þegar það á við,
samskipti innan fjölskyldu eða þjónustukerfis,
leiðir til að draga úr ágreiningi og erfiðum aðstæðum,
stuðning við foreldra og starfsfólk í að halda sameiginlegri línu.
Áhersla er lögð á að styrkja æskilega hegðun og skapa aðstæður þar sem barnið á auðveldara með að ná árangri, fremur en að einblína eingöngu á óæskilega hegðun.
Samstarf við þá sem koma að barninu
Ráðgjöfin er unnin í samstarfi við þá sem koma að lífi barnsins. Það getur meðal annars verið foreldrar, starfsfólk skóla, frístundaheimila, barnaverndarþjónusta, félagsþjónusta eða aðrir fagaðilar.
Þjónustan getur verið afmörkuð við mat og ráðgjöf eða falið í sér áframhaldandi eftirfylgd þar sem fylgst er með árangri, aðferðir endurmetnar og breytingar gerðar eftir þörfum.
Markmiðið er að þeir sem koma að barninu hafi skýr verkfæri og sameiginlegan skilning á því hvernig hægt er að styðja barnið og draga úr þeim aðstæðum sem ýta undir hegðunarvandann.
