top of page

Málsstjórn í barnavernd

LESA YFIR

Sigur ráðgjöf tekur að sér málsstjórn í barnavernd samkvæmt verkbeiðni barnaverndarþjónustu.

Þjónustan getur hentað þegar þörf er á tímabundinni aðstoð vegna álags, manneklu eða þegar óskað er eftir utanaðkomandi fagmanni til að taka að sér afmarkað mál eða ákveðinn hluta vinnslu þess.

Málsstjórn er unnin í nánu samstarfi við viðkomandi barnaverndarþjónustu og innan þess umboðs, verklags og verkaskiptingar sem hún ákveður.

Hvað getur falist í málsstjórn?

Umfang verkefnis fer eftir eðli máls og samkomulagi við verkkaupa, en getur meðal annars falið í sér:

  • yfirferð fyrirliggjandi gagna,

  • samskipti við barn, foreldra og aðra aðila máls,

  • viðtöl og upplýsingasöfnun,

  • samskipti við skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra fagaðila,

  • þátttöku í fundum og teymisvinnu,

  • skipulagningu og eftirfylgd úrræða,

  • skráningu og samantekt upplýsinga,

  • undirbúning gagna fyrir frekari vinnslu máls,

  • eftirfylgd með samþykktum aðgerðum og markmiðum.

Áhersla er lögð á skýra verkaskiptingu, regluleg samskipti við ábyrgðaraðila og vandaða skráningu þannig að staða málsins sé ávallt ljós.

Sveigjanleg aðstoð við álag og manneklu

Þjónustan getur verið sérstaklega gagnleg þegar barnaverndarþjónusta þarf tímabundið að auka afkastagetu án þess að ráða nýtt starfsfólk til lengri tíma.

Sigur ráðgjöf getur tekið að sér eitt mál, nokkur mál eða afmarkaðan hluta málsmeðferðar eftir þörfum. Verkefnið getur verið tímabundið eða staðið yfir lengri tíma ef aðstæður kalla á það.

Einnig getur utanaðkomandi málsstjórn hentað þegar tengsl, nálægð eða aðstæður í fámennu samfélagi gera vinnslu máls viðkvæma eða þegar aukið sjálfstæði og hlutlægni getur verið kostur.

Samstarf og skýr ábyrgð

Barnaverndarþjónustan heldur áfram þeirri lögbundnu ábyrgð sem henni ber samkvæmt barnaverndarlögum. Sigur ráðgjöf sinnir þeim verkefnum sem skilgreind eru í verkbeiðni og í samræmi við fyrirmæli og verklag verkkaupa.

Við upphaf verkefnis er því mikilvægt að skýrt liggi fyrir:

  • hvaða hluta málsins Sigur ráðgjöf annast,

  • hvaða ákvarðanir eru hjá barnaverndarþjónustunni,

  • hvernig samskiptum og upplýsingagjöf er háttað,

  • hvernig skráning og skil gagna fara fram.

Markmiðið er að skapa skýrt og skilvirkt samstarf sem tryggir samfellu í vinnslu málsins.

Barnið og fjölskyldan í forgrunni

Í vinnslu barnaverndarmála er lögð áhersla á fagleg, virðingarfull og skýr samskipti við barn og fjölskyldu.

Unnið er að því að afla upplýsinga með skipulegum hætti, skapa aðstæður þar sem sjónarmið barnsins geta komið fram og tryggja að þeir sem að málinu koma hafi sem skýrasta mynd af markmiðum, næstu skrefum og ábyrgð hvers aðila.

Málsstjórn er þannig ekki aðeins utanumhald um verkefni heldur einnig leið til að tryggja að vinnsla máls haldist markviss, samræmd og rekjanleg.

bottom of page