top of page

Talsmaður barna

Sigur ráðgjöf tekur að sér verkefni þar sem barni er skipaður talsmaður við meðferð barnaverndarmáls. Hlutverk talsmanns er að ræða við barnið, veita því öruggt rými til að tjá sig og koma sjónarmiðum þess skýrt og óháð á framfæri við barnaverndarþjónustu. Samtalið er lagað að aldri barnsins, þroska, tjáningarfærni og aðstæðum.

​

Reynsla af að ná til barna

Fjalar Freyr Einarsson er klínískur atferlisfræðingur og grunnskólakennari og hefur starfað með börnum og ungmennum frá árinu 2000. Hann hefur umfangsmikla reynslu af því að mynda tengsl við börn, skapa traust og styðja þau við að orða líðan sína, upplifun og sjónarmið.

 

Sérstök reynsla hans snýr að börnum og ungmennum sem:

  • eiga erfitt með að treysta fullorðnum eða tjá sig í formlegum viðtölum,

  • glíma við krefjandi hegðun eða mikla tilfinningalega vanlíðan,

  • eru með einhverfu, ADHD eða aðrar taugaþroskaraskanir,

  • hafa verið í skólaforðun eða flóknum fjölskylduaðstæðum,

  • þurfa einstaklingsmiðaða nálgun til að geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri.

 

Lögð er áhersla á rólega og virðingarfulla nálgun þar sem barnið fær tíma og stuðning til að tjá sig á eigin forsendum.

 

Sjálfstæði talsmannsins

Talsmaður barns er óháður öðrum aðilum málsins. Áður en verkefni er tekið að sér er kannað hvort fyrri aðkoma eða tengsl geti skapað hagsmunaárekstur.

 

Barnaverndarþjónustur geta haft samband vegna einstakra mála eða til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna.

bottom of page