top of page

Tilsjón á heimilum

Sigur ráðgjöf býður upp á tilsjón til foreldra vegna barna og ungmenna sem þurfa stuðning eða sýna erfiða hegðun. Tilsjóninni veitir fjölskyldum stuðning, leiðsögn og faglegt utanaðkomandi mat á aðstæðum.

​

Markmiðið með tilsjóninni er að styðja foreldra í foreldrahlutverkinu og hjálpa þeim að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að þroskast og dafna. Við leggjum áherslu á að styrkja foreldra í daglegum áskorunum, efla jákvæð samskipti innan fjölskyldunnar og finna hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu lífi.

​

Þjónustan getur hentað félagsþjónustum við tímabundið álag hjá stofnuninni eða þegar hagsmunaárekstrar gerir starfsfólki erfitt með að sinna verkefnum. Þá getur verið dýrmætt að fá utanaðkomandi aðila til að vinna í málum, tryggja nýtt sjónarhorn og auka traust í ferlinu.

​

Við leggjum áherslu á að vera traustir samstarfsaðilar sem bjóða upp á sveigjanleika, getu til að bregðast hratt við og vinnu á vettvangi eftir þörfum. Þjónustan er veitt bæði í gegnum þjónustusamninga við sveitarfélög og með þátttöku í afmörkuðum verkefnum.

​

Markmið okkar er ávallt að styrkja foreldra í mikilvægu hlutverki sínu og styðja börn og ungmenni til að blómstra.

bottom of page