Félagsráðgjöf
Einar Aron er okkar maður þegar kemur að ráðgjöf til einstaklinga, hvort heldur til para eða fjölskyldna. Þá tekur hann einnig að sér verktöku fyrir barnaverndarþjónustur og sveitarfélög. Hann starfaði sem yfirfélagsráðgjafi velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2024-2025 og er nú félagsráðgjafi á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem þjónustar níu starfsstöðvar.
Þjónusta

Ráðgjöf
Ráðgjöfin er byggð á félagsráðgjöf. Þjónustan er sérstaklega ætluð, félagsþjónustum, barnaverndum og skólaþjónustum. Tilsjón, viðtöl, óboðað eftirlit og fleiri þætti félagsráðgjafar.

Fyrirlestrar
Einar Aron heldur reglulega fyrirlestra fyrir fagfólk félagsþjónustu, starfsfólk skóla og annarra stofnanna auk fyrirlestra til foreldra. Efni fyrirlestrana eru fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að fjalla um hegðun skjólstæðinga og hvað hún segir okkur.

Greinar og fræðsla
Við bjóðum upp á fjölbreyttar greinar sem nýtast fagfólki jafnt sem notendum. Greinarnar taka á við fjölþbreyttan vanda er varða uppeldi, hegðun barna og unglinga, svefntíma og hvernig best sé að takast á við krefjandi hegðun.
Verðskrá
Þegar starfað er fyrir sveitarfélög er unnið samkvæmt sambærilegri verðskrá og þekkist meðal annarra sérfræðinga á þessu sviði. Verð eru 25.000 kr. klst. en tilboð gerð í stærri samningum.
Teymið
Þrátt fyrir mikla reynslu í fjölbreyttum málum hefur Einar Aron góðan hóp á bak við sig sem hann ráðfærir sig við. Í teyminu er atferlisfræðingur, grunnskólakennari, stjórnendamarkþjálfi og hjúkrunarfræðingur.
.jpg)

_edited.png)